Allir hópar / Hlaupasamfélagið

Hlaupasamfélagið

Hafnarfjörður

Utanvega

Hlaupasamfélagið býður upp á þjálfun allt árið og undirbúningsnámskeið fyrir Laugavegshlaupið og fjölda annarra hlaupa, bæði utanvegahlaup og götuhlaup. Hver iðkandi fær persónubundna mánaðarlega æfingaáætlun sniðna að eigin getu og markmiðum. Þjálfarar eru Sigurður P. Sigmundsson og Torfi H. Leifsson.

Nánar
Í janúar og febrúar eru samæfingar á sunnudagsmorgnum og á fimmtudögum í frjálsíþróttahúsinu í Kaplakrika. Frá mars eru tvær samæfingar í viku, á mánudögum og fimmtudögum, aðallega í Heiðmörk og við Hvaleyrarvatn, auk sameiginlegra fjallaæfinga. Nákvæmir tímar eru ekki gefnir upp.
Brottför
Kaplakriki, Hafnarfjörður
Sjá á korti Senda leiðréttingu